Mikið er þessi einstaklingur fáfróður, ellegar hefði hann aldrei skrifað slíka dómadags vitleysu hér á þetta annars siðsamlega internet spjallborð. Engar líkur tel ég á því að viðkomandi skrifi þetta í þeim tilgangi einum að valda pirringi og rifrildum á milli annara notenda þessa fína spjallborðs. Nei, heldur tel ég að viðkomandi þurfi einfaldlega að heyra frá ögn skynsamari einstaklingi, tja líkt og kannski sjálfum mér, svo að hann sjái ljósið. Best að útlista fyrir honum villum vega hanns...