Þegar ég tek mig til og fer í föt sem mér líkar eru það oftast jakkafatabuxur og skyrta. Smelli einhverju flottu vesti með ef ég er í stuði. Síðan er það annaðhvort jakkafatajakki eða frakkinn minn góði. Geng í skóm í stíl, þó að mig sé sárlega farið að vanta nýja (Kringlan á ekki eitt par af skóm sem mig langar í :/). Hattur, trefill og hanskar fá að fljóta með ef mér þykir þess þurfa. Íþróttabuxur og einhver peysa þegar ég er í vinnunni.