Talið bara við þau. Þau læra ekki neitt ef að þið gangið hneyksluð í burt, og ofbeldi leysir engan vanda. Ef það bregst getið þið alltaf beðið þau að fara með ykkur heim til sín svo að þið getið rætt við foreldrana. Foreldrarnir búast ekki við þessu heldur, þannig að þetta getur verið hin fínasta dægradvöl. Annars vinn ég í augnablikinu með börnum, og þó að þau geti stundum verið erfið hef ég aldrei lent í neinu svipuðu.