Jú, ég er alveg viðbúinn því að aðrir tjái sínar skoðanir, en mér finnst full algengt að þær séu settar fram í þeim eina tilgangi að traðka niður skoðanir á öndverðu meiði. Séu settar fram sem eina rétta lausnin. Ég veit þó allavega að mínar skoðanir eru ábyggilega ekki eina rétta lausnin, hef reyndar enga trú á að slík lausn sé til. Ég vil endilega sjá og heyra sem flestar skoðanir, til að móta mínar eigin betur. Sumir eru hinsvegar fullvissir um ágæti eigin skoðana, taka aldrei tillit til...