Jú, amfetamín er lyfseðilsskylt lyf hér á landi. Það ætti að vera sama efni og er á götunni, löggan er jú alltaf sögð hafa lagt hald á X grömm af amfetamíni. Hins vegar hef ég heyrt talað um meþþa, femma, blómafemma og ég veit ekki hvað, svo að kannski er þarna einhver munur á. Sjálfur hef ég þó mjög takmarkaða reynslu af efninu, langar reyndar lítið að bæta við þá reynslu, og veit því ekki um hvers lags efnafræðilegan mun er að ræða, ef einhvern.