Hún Heiða er feministi, ekki að ég segi það sem meinyrði. Hún er það… Einnig er það mjög augljóst í mörgum gagnrýnum hennar, þó ekki í akkurat þessari. Það að gagnrýna kvikmynd á neikvæðan hátt er hið besta mál, svo lengi sem fullnægjandi rök eru gefin fyrir því. Því miður virðast margir dómar hennar byggðir á tómri vitleysu og því oft erfitt að gera annað en hneykslast.