Þetta er bara ekki það einfalt. Þetta er spurning um, eins og ég sagði hér áðan, ástríðuna, viljan, baráttuna og hjartað og þetta er eitthvað sem peningar kaupa ekki… Og því sama hversu háar upphæðir einhver fær borgað, hann getur ekki bara látið þetta birtast. Þetta er eitthvað sem stjórinn þarf að byggja upp, í sameiningu með liðinu, og er það fyrst og fremst það sem átt er við þegar talað er um liðsanda, þá frekar en einhver persónuleg vandamál leikmanna þó að þau geti að sjálfsögðu haft...