Af hverju í ósköpunum halda svona margir að það sé bara einhver EINN maður sem tali inn á alla trailera og hafi gert það frá upphafi?? Auðvitað er það ekkert bara einhver kall sem gerir þetta, margir með svona rödd og mjög margir sem hafa talað inn á svona trailera og hljóma svipað. Þetta er bara alveg eins og útvarpsmennirnir allsstaðar í Bandaríkjunum, þeir hljóma næstum nákvæmlega eins allir saman, en þeir eru ekki eini og sami gæjinn þrátt fyrir það. Þeir hafa svokallaða útvarpsrödd....