“BIBLÍAN lýsir huga Guðs, ástandi mannsins, vegi hjálpræðisins, dómi Guðs yfir syndaranum og sælu hins trúaða. Kenning hennar er heilög, boðorð hennar bindandi, frásagnir hennar sannar, úrskurður hennar óbreytanlegur. Lestu hana, svo þú verðir vitur, trúðu henni þér til sáluhjálpar og breyttu eftir orðum hennar þér til helgunar. Hún er ljós, sem lýsir, andleg næring, sannur gleðigjafi og hughreysting. BIBLÍAN ætti að fylla hug okkar og hjarta, stjórna lífi okkar og beina okkur á friðarveg.”...