Ég las í einhverju viðtali við John Lennon um að hann hafi verið með samviskubit yfir því að vera að hætta í Bítlunum og ákvað að segja að Paul væri The Walrus.
At sea level, the speed of sound is about 761 miles per hour (1,225 kilometers per hour). At 20,000 feet (6,096 meters), the speed of sound is 660 miles per hour (1,062 kilometers per hour).
Já. Það er mjög óþægilegt að vita að maður lærði miklu meira fyrir nokkrum árum en ég bara kem mér ekki aftur á strik. Ég læri alveg í skólanum og allt í fína með það en þegar ég er heima þá get ég bara ekki lært þó ég hafi nákvæmlega ekkert að gera.
Enska er alveg nóg fyrir flugmanninn. Það er eina tungumálið sem flugmenn tala saman á út í heimi. Það eru náttútulega þessar 12 einingar í ensku sem þú þarft að ná + 15 einingar í stærðfræði og 6 í eðlisfræði. Ef þú ert bara að tala um einkaflugmanninn þá þarftu ekki að hafa áhyggjur af því svo lengi sem þú skilur allt radio málið á ensku. Bætt við 10. apríl 2007 - 17:27 Einingarnar sem ég var að tala um er fyrir það ef þú vilt verða atvinnuflugmaður.
Eins og ég. Ég stóð mig alltaf vel í gamla daga en núna er eins og allur metnaðurinn og viljinn sé horfinn. Þetta er ömurlegt. Ég er marga klukkutíma að peppa mig upp í að byrja að læra og ef ég næ því þá læri ég bara smá og hætti svo.
Léleg gæði skipta engu, bara að halda myndaflæðinu gangandi. Persónulega finnst mér skemmtilegra að sjá svona myndir en að sjá einhverjar pro. Maðu r er hvort eð er búinn að sjá þær allar á airliners. :) Endilega sendið meira af svona myndum og kannski einhverja sögu með þeim eða whatever eða spurningar. Búa til smá umræður hérna.
Jebbs. Icelandair græða mikið á að leigja vélarnar sínar. Icelandair er með 2 Boeing 767 síðast þegar ég vissi en eina áætlaða flugið hjá þeim með Icelandair er til San Francisco og það er gert 2svar í viku og bara á sumrin þannig að önnur þeirra er alltaf í verkefnum fyrir önnur flugfélög og oft báðar.
Sigurrós eru góðir. Ég var fúll í gær þegar ég svaraði þessu. Hann er ekkert ömurlegur tónlistarmaður og gaurinn sem ég svaraði hefur örugglega ekkert kynnt sér hann af viti. Það fer bara í taugarnar á mér ef fólk sem segir að hitt og þetta sé lélegt eða ömurlegt þegar það hefur aldrei kynnt sér málefnið. Ég hef samt heyrt að Bubbi Morthens er sá eini sem hefur getað lifað á því að vera bara tónlistarmaður á Íslandi. Ég man ekki hvar samt. En ég er ekki með sannanir fyrir því.
Spurðu hann bara :). Annars áttu eftir að sjá eftir seinna með. Ég efast um að hann eigi eftir að gera grín að þér. Ekki færi ég að gera grín að stelpu sem væri hrifin af mér. Ég mæli með að þú takir fyrsta skrefið og spyrð hann bara. Þá allavega veistu hvort hann fíli þig eða ekki. :)
Hann er ekki átrúnaðar goð mitt. Hann er góður tónlistarmaður. Mjög svo góður. Hann er sá eini sem hefur getað lifað á því að vera bara tónlistarmaður á Íslandi. Hvað segir það um manninn? Að hann sé slæmur tónlistarmaður? Af hverju þekkirðu nafnið Bubbi Morthens? Af því að hann er svo lélegur? Nei. Og hann er far from being a sellout. Bara góður gaur sem semur góð lög.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..