Hmm, ég fattaði alveg hvað þetta er stór skóli. Mig langar samt miklu meira í fjölbraut… Ég veit ekki. Ég veit ekki hvað e´g vil gera, það er málið. Myndi kannski fara í hagfræði í Verzló en mamma og pabbi eru með fordóma :P Ég var eitthvað að grínast við þau og spyrja hvort að ég ætti ekki bara að fara í Verzló og fékk þau svör að ég gæti þá borgað skólagjöldin sjálf. Annars, eins og ég sagði, veit ég ekki hvað ég vil gera og þess vegna er best að fara bara í fjölbrautarskóla og læra allt...