Já mér finnst hann ágætur, að utan allt í lagi en innréttingin finnst mér ansi flott bara. Ég hef nú alltaf sagt að Hondur séu druslur og allt of mikið tekið út úr þessum litlu vélum. Nú man ég ekki hvort 2,4 lítra vélin er 4 eða 6 cylendrar en sé hún 6 gæti ég vel trúað að hún entist yfir 100 þús km :)
Ég á bíl sem kvenfólk virðist laðast að (það getur varla verið ég). Er þá ekki bara málið að reyna að næla í þær sem eru ekki að pæla í bílnum? (fleyta rjómann ofan af)
Hversu oft eru fundir þessa félags og hvað er gert, mæti maður ekki. Er þessi klúbbur ekki fyrir fólk úti á landi. Ég er bæði í skóla og vinnu og gæti kannski ekki séð mér fært að mæta á alla fundi þ.e. ég þarf að keyra rúma 100 km í bæinn. Svo er það annað, þessar 3000kr, hvernig reiknið þið þessa tölu út? Og hvernig húsnæði er þetta, eingöngu til fundahalds eða eitthvað meira?
Sammála Mal3, ef maður fer nokkrir saman og kaupir hálft eða heilt mót er þetta alls ekki svo dýrt, man reyndar ekki hvað það kostaði en það var tiltölulega mikið ódýrara
Eg er mjög sammála þessari grein þinni. Eg keyrði á mínum bíl allan síðasta vetur (nauðugur þ.e. ég á heima lengst uppi í sveit) og fór held ég aldrei yfir 70 (enda bíllinn kannski ekki sá besti til vetraraksturs) Nú tók ég fákinn af númerum og parkeraði honum inni í skemmu.
Til hamingju með þessar tölur :) Fólki þykir oft gaman að ýkja bensíneyðslutölur á hinum ýmsustu bílum (kannski til að bíll viðkomandi virðist vera eyðslugrannur). Camaroinn 5,7 LT1 hefur farið niður í 10 lítra hjá mér (að vísu sparkeyrsla). Þetta fer allt eftir því hvernig maður keyrir þetta ég kem honum léttilega upp í 25 - 28 ef viljinn er fyrir hendi :D Saxi
Stafasúpur eru eru oft góðar. Lotusinn virðist vera ansi skemmtilegur já, allavega virðist Tiff Needel (rétt?) líka við hann. Léttur, sprækur, hrár, sporfílingur, frekar ódýr og já svo virkar merkið líka :)
Þetta eru ágætis bílar í akstri veit ég en ég hef heyrt frá manni í umboðinu að Accentinn og þessir bílar séu ansi bilanagjarnir. Ekki þori ég að selja það dýrara en ég keypti það og held að þetta sé nú bara spurning um rétt viðhald. Saxi
Ferrari og Chevrolet skal það vera heillin!! NR 1. 1957 Ferrari 250 Testa Rossa (þessar nyju eru bara ekki eins skemmtilegar) NR 2. Ferrari Enzo (F60) Tær snilld!! NR 3. Gamla gamla big block Corvette NR 4. 72 Stingrayf (verður að vera eldri en '73 allavega.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..