Ég hlustaði mikið á Live og Creed *gubbkall* þegar ég var í 7. bekk. Var að taka mín fyrstu skref í rokkinu..mistök. Er sem betur fer búin að henda þessum diskum!
Kom ekki einhver grein um þá hérna í vor, held það.. En annars finnst mér þetta ágætt það sem ég hef heyrt, en ekki nógu mikið til þess að verzla sér disk.
Gætiru kannski bent mér á þá síðu? Og já, ég er búin að leita á Google..fann bara klám og einhverja lagalista á plötum..ekkert download. Fann reyndar heimasíðu Seth Putnam, en downloadið var “unavailable at the moment”.
Fyrstu fjórar eru góðar, en það er takmarkað hvað maður getur hlustað á þessa fjóra diska oft.. Síðan þá hafa þeir bara gert lélegar plötur.. Ég hata þá alls ekki, bara orðinn þreyttur á þeim.
Maðurinn var stórkostlegur, og var í miklu uppáhaldi áður en hann dó (ekki það að það hafi breyst e-ð til hins verra eftir að hann dó). En eftir að hann dó má eiginlega segja að hann hafi þá orðið guð. Maður þarf jú að deyja til þess að verða guð. En að segja að hann sé ofmetinn bara að því að 12 ára guttar fýla hann er bara rugl. Þetta er eins og þegar hljómsveit verður mainstream, og þá hætta gömlu aðdáendurnar að fýla hljómsveitina því að bandið er orðið mainstream..
Ég fékk mér Painkiller og fannst hann geðveikur. Fékk mér síðan British Steel og fanns hann hundleiðinlegur miðað við Painkiller, þannig að ég lét Judas alveg vera eftir það, en finnst Painkiller samt ennþá geðveikur.
Söngur: Phillip Anselmo Gítar: Dimebag Gítar: Alex Scolnick (Testament) Bassi: Steve DiGorgio (Testament og helling annað) Trommur: Dave Lombardo eða bara Pantera.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..