Ég var einu sinni í Svíþjóð, tók lítinn gítar sem var rammfalskur og vantaði 2-3 strengi á, og settist á fjölfarna göngugötu og hafði húfu fyrir framan mig. Þarna sat ég og gaulaði hástöfum Írafár lög á meðan ég spilaði undir á gítarinn. Ég kann einmitt ekkert á gítar og syng frekar illa. Það var þó einn maður nógu góður til að gefa mér nokkrar krónur, eflaust bara til að þagga niðrí mér.
1. Já. 2. Nei. 3. Já. 4. Nei. 5. Já. 6. Já. 7. Svona næstum því, ég vissi allavega ekkert hvernig ég komst heim á gamlárskvöld. Frétti seinna að vinir mínir hefðu farið með mig heim og ég röflaði eitthvað í þeim alla leiðina.
Ein mynd sem ég teiknaði þegar ég var 5-6 ára, ein mynd sem amma mín gaf mér í fæðingargjöf eða eitthvað álíka og svo er ég með einn körfuboltabúning sem ég spilaði í á farsælum körfuboltaferli mínum. Búningurinn samanstendur af tveim bolum og einum stuttbuxum.
Senda krakkann sem var í Kastljósinu um daginn, hann var eitthvað um 5-7 ára. Kvenfólk um alla Evrópu myndu kjósa hann bara af því þeim fyndist svo krúttlegt að sjá svona strák syngja. Svo væri hægt að útvega honum einhverja kynæsandi kvenkynsdansara og súkkulaði stráka til að sjá um dans og tilheyrandi show. Það myndi slá í gegn.
Sigur Rós, System Of A Down, Mugison, Þórir/My Summer As a Salvation Soldier, Arcade Fire, Hjálmar, Múm, Clap Your Hands Say Yeah, Bright Eyes, Dikta, Jeff Who? og Maus.
Ég var einmitt í þessari búð í dag. Það var mjög þægilegt að sitja í þessum stólum, en verðið var ekki eins þægilegt. Mig minnir að einn stóll kosti 33.000 krónur.
Það eru email skráð á notendur hérna, það er allavega í egóinu og það er hægt að breyta því. Svo var þetta bara svona hugmynd að senda email á alla það eru kannski til aðrar leiðir en mér finnst að það ætti að hreinsa til í notendanöfnunum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..