Eitt af best gerðu og frábærustu kvikmyndaatriðum síðari, ef ekki allra tíma, er tangóatriðið í Moulin Rouge! Það sem gerir það svo stórkostlegt er uppbyggingin á því og hvernig Baz Luhrman skeytir saman atburðarásinni: Tangóinum á Moulin Rouge, kvöldverðurinn í kastalanum og söng Ewan McGregor. Þetta er skólabókadæmi um hvernig á að byggja upp atriði sem endar síðan með hvelli, bókstaflega. Þarna koma saman ótrúleg tónlist, litadýrð, ljósanotkun, klipping og góður leikur til þess að mynda...