Mitt sérfag á jólunum er jólaölið, ég leik mér endalaust að því að blanda, smakka bæta við appelsíni, malti eða kók. Hvernig fólk blandar jólaölið er mjög mismunandi, það er ekki langt síðan einhver hneykslaðist mikið á því að ég notaði kók með í jólaöl, hafði bara aldrei heyrt það áður. Sumir vilja mikið malt, en þar sem það drepur gosið niður þá held ég mig við að nota meira appelsín, stilli svo litinn af með kóki, sem gerir mjög lítinn bragðmun bætir bara við gosi og breytir litnum =)...