Ég er mikill dýravinurog þá einkum hunda og hesta. Ég ætla að segja ykkur frá Röskvu minni. Röskva er rauðskjótt hryssa. Hún er fjögra að verða fimm vetra í vor. Þegar ég sá Röskvu fyrst heilaðist ég af stærð hennar og vaxtarlagi, því hún er stór og falleg. Þá var hún kölluð Sjöfn, en ég vissi strax að hún ætti heldur að heita Röskva. Hún var heldur stygg í fyrstu, og vildi ekkert við mig tala. Í annað skipti sem ég hitti Röskvu urðum við góðir vinir, því mér var sagt að gefa öllum hestunum...