Sæll Links Það sem réttast væri að þú gerðir væri að láta mæla hvaða sveifluhraða þú ert með, kæmi mér ekki á óvart að þú værir með í kringum 80 mph. sem þýðir að þér myndi henta best að vera með regular sköft. Reyndar er það óþarfi að spreða í nýtt sett, þú gætir til að mynda látið skipta um sköft í þeim sem þú átt, kostar mun minna. Hvort að þú fýlir Ping, Titleist, Callaway eða nokkurt annað merki verður þú að ákveða sjálfur, en rétt er að erfiðara er að slá með blade kylfum, en á móti...