Á öllum farþegavélum er vélin þjónustuð hægra megin og farþegar ganga til og frá borði vinstra megin. Á algengustu flugvél í heimi, skíthák, má ekki dæla á með farþega um borð.
Ég stóð uppi einn daginn með kennararéttindi, 500 heildartíma, þar af 100 á twin fyrir u.þ.b. 6.000.000 kr. Eftir það hætti ég nánast að kaupa tíma, hef þurft að borga fyrir eitt PFT. Er í dag með rúma 870 heildartíma og þar af 165 tíma á twin.
Thad kemur hvarvetna fram hver atti velina thannig at hvada mali skiptir trimmingin a velinni. Afhverju eru menn at argast yfir einhverju sem engu mali skiptir. Velin var leigd til einkaflugmanns, thar af leidandi i einkaflugi.
þú virðist ekki hafa nein rök fyrir því að vélin sé gömul og léleg. Vélin flýgur til Köben á morgnana og fer í loftið til London seinnipartinn á sama tíma og Icelandair. Veitingar, til hvers að ferðast í 2-3 tíma með lággjaldaflugfélagi og versla um borð, þú mætir bara saddur. Flugfélagið getur varla farið að mismuna farþegum eftir því hvort þeir eru leiðinlegir eða skemmtilegir. Spurning líka um að biðja fólkið fyrir framan að rétta úr sætinu. Þegar ég kaupi mér far með lággjaldaflugfélagi...
Win 2000 á að hafa driverana fyrir. Eina sem þú þarft að passa er að tengja pinnan við tölvuna á meðan það er slökkt á henni og kveikja svo. Virðist ekki duga að tengja hann á meðan kveikt er á tölvunni og fara svo í find new hardware.
Ég vil benda á að staðsetning vallarins er ekki slys heldur staðsetning húsanna í kringum hann því að flest húsanna komu eftir að völlurinn var byggður.
Voðalega eru menn eitthvað fullkomnir. Mig hefur einmitt lengi langað að prófa Battlefield, hef bara ekki tímt að kaupa hann sem maður verður einmitt að gera til að geta spilað hann á netinu.
Að sjálfsögðu en ég tel það ótvíræðan kost að þurfa ekki að hanga einhvers staðar úti í heimi frá fjölskyldu sinni. Í fyrsta sæti eru jú kjörin, þ.e. laun o.s.frv. Þetta eru stutt flug miðað við ameríkuflugið og að öllum líkindum endar vinnudagurinn alltaf heima. Þannig að þetta er ekki spurning í mínum huga. Þetta er að sjálfsögðu bara mín skoðun.
Ef ég fengi vinnu hjá Astraeus þá myndi ég nú ekkert vera að stinga af um leið og íslenskt félag kallar. Vegna þess að það er engin útivera hjá Astraeus sem mér finnst mikill kostur.
Skráðu þig á www.pprune.com, kostar ekkert, og spyrðu þar. Eitthvað um 50 þúsund skráðir flugmenn og flugvirkjar ásamt öðru fólki tengdu flugi. Ef ég hef einhverjar spurningar um útlönd þá spyr ég þar og er yfirleitt kominn með a.m.k. 10 svör daginn eftir.
Jú þetta var á flugsýningu með fullt af fréttamönnum, þessvegna eru góðar myndir af þessu. Hann ætlaði að gera low pass en vélin vildi lenda. Annars er líka gott angle fyrir fyrirlestur viðhorf flugmanna til Airbus. Mörgum finnst hún orðin of sjálfvirk, jafnvel þannig að maðurinn ræður ekki lengur.
Egilstaðir og Húsavík eru reyndar helv. góðir staðir. Flatneskja í kring. Á báðum stöðum vísa brautirnar út á haf og þær eru í framúrskarandi ástandi. Þetta myndi að sjálfsögðu gera það að verkum að borgarbörn lærðu að meta land og náttúru betur.
Þú mátt alveg byrja að læra, þú mátt bara ekki taka solo próf fyrr en þú ert orðinn 16 og mátt ekki taka einkaflugmannspróf fyrr en 17. Þó þú megir alveg byrja að læra er það kannski full snemmt fyrir þig. Ég myndi kíkja í svifflug upp á Sandskeiði næsta sumar. Þú færð mikla og góða reynslu út úr sviffluginu og mátt taka solo 15. Ef þú ætlarð þér að taka atvinnuflugmanninn þá mæli ég með að þú klárir stúdentspróf. Fáðu svo hálfpabba þinn til þess að fara að fljúga með þig og gefa þér ráð.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..