Góður punktur Lárus. Eins og ég hef verið að benda á, en við litla athygli, þá voru loftárásirnar á Júgóslavíu hryðjuverk. Ráðist var kerfisbundið á borgaraleg mannvirki, í þeim yfirlýsta tilgangi að þvinga stjórnvöld til að skipta um skoðun í pólitísku máli. Þetta eru nákvæmlega sömu aðferðirnar og IRA og rauðu herdeildirnar beittu, aðeins umfangsmeiri og árangursríkari. Á þessu bera svo leiðtogar okkar lands ábyrgð (ásamt öðrum).