Já, ég spila með Spyder TL PLUS og verð að segja að það er þrusu merkjari að mínu mati, hef ekki ennþá fundið stóran galla. Annars hef ég alltaf verið mjög hrifinn af Spyder merkjurum, verðið viðráðanlegt og gæðin mjög góð.
Heimskuleg og tilgangslaus? Kannski ekki í miklum greina stíl en þó eru þessar greinar sem eru skrifaðar á huga kannski til að vekja umræðu og hvetja fólk til skoðanaskipta sem þessari grein/kork hefur svei mér tekist :) 147 athugasemdir er með því meira sem gerist.
Jáhá. nokkuð magnað að lesa þetta og sjá bæði hvað fólk er samkvæmt sjálfum sér og svo líka hvað sumir eru óhæfir um að tjá sig með staðföstu máli. Já ég er rauðhærður og þessir fordómar eru til staðar en ég get sjálfur viðurkennt að maður tekur þessu oft kannski aðeins of illa í staðinn fyrir að hlæja bara og láta þetta ekki fara í taugarnar á sér. Ég hef lengi pælt hvað það er sem veldur þessu, gæti verið að það sé viss hræðsla? Þegar manneskja rekst á einhvern úr svo litlum hópi eins og...
Ég verð að segja að ég hef enga trú á því að schumacher gangi vel einungis vegna hæfileika.. ég mundi nú setja bílinn og liðið á undan, ég held að það sé deginum ljósara að þetta er líka bíllinn. allir gætu unnið á þessum bíl.
Ég var að ræða þetta mál um mözduna við pabba minn sem er með mastersgráðu í bifvélavirkni og hefur sótt námskeið og kennslu í bílvélum í fleiri fleiri ár til útlanda og hann sagði mér að þessi bíll sé ágætur þangað til að búið er að keyra hann 90.000 km og þá er hann dauður og bara vesen að eiga þetta.. Þetta var allavega svona með RX7una og þessi vél er svipuð í uppbyggingu. Þó ef ég ætti 4 millur þá mundi ég ekki hika við að fá mér svona ! Bara selja hann í 80.000 km :P<br><br>“We are...
Nei ekki vondur en kannski finnst hinni stelpunni illa komið fram við sig útaf einhverju sem gerðist eða eitthvað.. en nei ég held að þú sért ekki vondur :D Bara erfitt að vera unglingu
Já enda virði ég það sem þú ert búinn að vera að gera.. Þetta stoppar bara allt á eins og þú segir hræðslu í bláfjallanefnd. Þó að veðurfarið sé öðruvísi á Akureyri þá er samt hægt að gera hluti sem eru svipaðir og þar. En já þetta er allt að gerast :D Og aðstaða þarf ekki endilega að hvíla á veðurfari. :)
Nákvæmlega það sem ég hugsaði líka soldið mikið atlimg..! Ég held LarusH að það sé rosalega auðvelt fyrir þig að segja þetta og koma með þessar fullyrðingar af því að þú hefur aðstöðu í Hlíðarfjalli sem er hreint og beint frábær en ekki er hægt að segja það sama um Bláfjöll. Ef að ég væri að Norðan mundi ég samt hugsa eins og þú vegna þess að þar er voða lítið til að kvarta undan.. :)
Hann segist bara hafa orðið svo hissa eða eitthvað. En ég mundi ekki segja að hann hafi verið að væla í fjölmiðlum, meira svona benda á eitthvað.. En ég trúi varla að þér finnist svona framkoma til fyrirmyndar.. Mér finnst að hún eigi ekki að vera til staðar í fjöllunum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..