Turtles! Hvernig gat ég gleymt þeim!? Horfði ekkert smá oft á þetta í gamla daga. Mamma bannaði mér svo að horfa á þetta þegar hún sá mig vera leika bardaga atriði úr myndinni. Ég lofaði að gera það aldrei aftur og grátbað hana um að leyfa mér. Hún leyfði mér loksins á endanum. :P
Þú verður að horfa á hana aftur… það er rosalegt að gera það. Man þegar ég horfði fyrst á hana eftir svona 7 ára pásu. Ætlaði að horfa á hana einn þegar ég var veikur en þorði því ekki þegar ég sá skrímslið og hætti en hélt svo áfram þegar mamma kom heim. :P
Mér fannst demo-ið alveg ágætt en mig langar miklu meira að prófa campaign map þar sem mér finnst miklu skemmtilegra þar (samt mjög gaman að stjórna þessum epic bardögum sem koma af og til). Er líka sammála Rumms… Shogun 2 hefði verið rosalegur. Hann er lang skemmtilegastur! :P
Það er langt síðan feministi var jafnréttissinni(mitt álit). Feministar eru konur sem vilja að kvenkynið ræður. Ég er t.d. jafnréttissinni, ég vill jafnrétti en ekki að konur ráði.
Ætli að maður verði bara ekki að sætta sig við að feministar hata allt sem hefur karl eða maður eða bara eitthvað samheiti yfir karlkyns eintak? Kannski samt ekki karlkyns fegurðarsamkeppnum…
Jónir eru þetta sem segja hvort sameindin sé - eða + hlaðin, ef það eru fleiri - jónir en + þá er sameindin mínushlaðin… minnir mig. Svolítið langt síðan maður lærði þetta. :P En er ekki annars NaCl bara sameind?
Sjálfum finnst mér móðgandi að kalla mig krútt. Ég fer samt ekkert að kyssa bísana mína. Í mínum augum er það eins og að kalla stelpu trukkalessu eða trukk. Kettlingar eða eitthvað álíka eru krútt en ekki karlmenn. :P
Þarna rafveitu auglýsingin sem einhver kall syngur. Svo hata ég líka þarna flísalagnir eða eitthvað þar sem laddi(held ég) leikur wannabe Pink Panther.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..