Fer alveg eftir einstaklingum. Ég er 15 ára, í 9. bekk, og það eru/voru nokkur samböng í gangi alveg frá upphafi 8. Ég hef aldrei fundið neina löngun til þess að byrja með einhverri af stelpunum sem ég þekki. Þær eru margar aðeins of vanþroskaðar fyrir minn smekk, sem segir sitt, en annars finnst mér kannski aðeins of snemmt að vera að byrja á einhverju svona núna. Annars, varðandi þetta sem þú varst að segja varðandi það að sofa hjá. Kynlíf er alls ekki nauðsynlegur hluti af ástarsambandi....