Fyrir ekkert allt of löngu síðan fengust nákvæmlega eins skór í Gyllta kettinum. Þú getur samt líka kíkt eftir svona skóm í kannski Focus, Deres o.s.frv. Bindi eins og þú ert að tala um fást nánast hvar sem er, en kannski helst í Selected (Smáralind, líka hjá Jack&Jones í kringlunni) eða Gallerí sautján (Mao bindin, þau eru íslensk framleiðsla). Kíktu líka í Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar, þeir eru með svona bindi veit ég. Kulturmenn eru með ágætis úrval af bindum, en þau eru ansi dýr,...