Gæði jakkafatanna hjá Selected eru frekar misjöfn. Ég á ein jakkaföt, einn stakan jakka og einar stakar jakkafatabuxur frá þeim og þetta er frekar misjafnt. Jakkafatasettið er ekkert stórkostlegt, en það er ágætt. Staki jakkinn er hins vegar mjög góður, mjög gæðalegur og bara allt gott við hann, og sama gildir um þessar stöku buxur (buxurnar eru þær flottustu sem ég á, rosalega vel sniðnar). Hins vegar eru þeir oft með mjög flotta jakka til sölu, sem er einmitt það sem þráðarhöfundur spyr um.