ööööö… Tölvan er ekki á borðinu, en skjárinn er þar, lyklaborð, tómur nammipoki, tóm kókdós, pennakassi sem á að vera í gluggakistunni.. mús, tablet, hátalarar, lampi, ipod hátalarar og ipod, kokeshi dúkka, glas með vatni, lítið mintubox með tölvuleikjum í, vekjaraklukka, myndavél, kanna full af klakavatni, eitthvað hárglans dótarí, gloss, límmiðar, teygja, kvittun, penni, flísatöng, lyklaborð, fjórar skólabækur, augnskuggi, hleðslubatterí fyrir mús. Jaaá.. nokkurs konar ruslageymsla í augnablikinu.