ég lenti einmitt í því að ég var í skólanum og einhverjir littlir krakkar voru að rífa kjaft við vin minn og ég fer til hans að tala eitthvað við hann. Neinei kemur þá ekki einhver ofvirkur krakkaormur og byrjar að kasta skóm í mig! Ég verð undrandi í fyrstu og segi honum að hætta þessu eða lemji hann….tekur hann þá ekki lykla og neglir í andlitið á mér! Ég verð öskureiður og hrindi honum frá mér og hann dettur og fer eitthvað að væla og hótar að koma með hníf í skólann á morgun og skera mig...