Örugglega geðveikur leikur. Tag línan fyrir hann er held ég “No Place To Hide” eða eitthvað álíka. Þá er verið að meina að í þessum leik verður umhverfið miklu meira lifandi. T.d. ef þú ert að fela þig bakvið kassa þá kemur kannski einhver vinnuvél og tekur kassan. Ég held að Kojima hafi sagt að það komi 3 MGS leikir í viðbót. Þeir eru MGS3:Subsistance það er svona expansion pakki fyrir MGS3, inniheldur multiplayer og fleiri fítusa. Svo er það MGS4 og einn leikur í viðbót sem ekkert er vitað um.