Ef þú ert kaþólskur, þá trúir þú á guð, ekki kaþólsku kirkjuna. Þó þú sért á móti kaþólsku kirkjunni þá þýðir það alls ekki að þú sért minni trúmaður fyrir vikið. Þess vegna er þetta ekki diss á trúarbrögð ;)
Tvennt: 1) Þú þarft að skrifa SPOILER áður en þú ferð að greina frá söguþræðinum. 2) Endilega skrifaðu aðeins ítarlegri dóm næst, t.d samanburð við aðrar bækur eða e-ð. Einungis tillaga samt.
Þetta hlýtur að eiga að vera vörumerkið þeirra, mér finnst harla ólíklegt að þessir þulir lifi sig svona rosalega inn í alla leiki og öll færi :) Gott eða slæmt? Að minnsta kosti skárra en of daufur þulur…
Mikið til í þessu hjá þér. Maður getur hannað sína námsskrá örlítið sjálfur, með því að leggja meiri áherslu á þau fög sem maður telur koma sér hvað best að notum í framtíðinni.
Nokkuð til í þessu hjá þér, það er miklu erfiðara að koma einhverjum alvöru málum í gegn ef þrír flokkar þurfa að samþykkja það… Annars ætla ég ekki að dæma Steinunni Valdísi eftir, hvað, viku í embætti?
“Stjórnvöld myndu græða marga milljarða við lögleiðingu.” Þetta er samt erfitt fyrir þig að fullyrða um. Ég efast um að kostnaðurinn myndi lækka ef neysla á vímuefnum myndi aukast t.d. hundraðfalt. Ólíklegt? Það veit enginn…
Þú gerir þér grein fyrir því að líkaminn er margfalt lengur að vinna úr efni eins og t.d. hassi og líkur eru á að maður upplifi vímu allt að mánuði seinna. Samkvæmt því þyrfti þá að banna hassneytanda að keyra í einn til tvo mánuði eftir neyslu…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..