Persónulega finnst mér að þessi myndbirting sé í lagi. Ef þetta er höfuð þarna, en ég tel að ekki sé hægt að fullyrða það, á ekki að sýna myndina, en svona myndir af vettfangi finnst mér alveg mega sýna, svona gerðist þetta einfaldlega og aðstandendur mega alveg sjá það, óþarfi að vera að þagga niður eða fegra sannleikann. Þetta getur líka verið öðrum víti til varnaðar, í umferðinni getur farið illa.