Jahá! Ég horfði á þennan leik og var hann prýðisskemmtun, í takt við fyrri leiki þessara úrslita og óska ég Pistons til hamingju. Ég er hins vegar ennþá að komast yfir hvað þessi deild er háð fólkinu með peningana, ekki nóg með þessi 10 auglýsingahlé eða hvað það nú er, heldur þarf að troða einhverjum eiganda upp á sviðið þegar Pistons vinna. Þetta finnst mér hálfpartin vera vanvirðing við spilarana og þjálfarann, sem eru liðið sjálft. Þeir sem eiga liðin eru ekki í sviðsljósinu, eða eiga...