Það er náttúrulega Egilstaðir en ég myndi ekki tjalda(eða hvað sem þú ert á) þar. Tjaldstæðið er beint við aðalveginn og það er umferð 24/7. Ég myndi fara í Atlavík sem er þarna rétt hjá. Það er mjög fallegt svæði rétt við Lagarfljótið. Hallormsstaðaskógur er líka mjög áhugaverður staður. Borgarfjörður eystri er líka mjög fínn staður.