Það tekur enginn strætó, mitt rassgat! Það þarf tvo, Leið 4 kl.7:50 á morgnanna til þess að anna öllu því fólki sem notar þá leið, skólafólk og fólk sem á ekki bíl eða einfaldlega eitthvað annað fólk. Ef einhver ætlar að fara að halda því fram við mig að strætó sé lítið notaður samgöngumáti þá get ég rekið þá vitleysu aftur ofan í kokið á þeirri manneskju. Skólafólk, eldra fólk, þeir sem ekki eiga einkabíl, allt þetta fólk notar strætó að staðaldri. Ég hef notað strætó síðustu 7 árin mjög...