Hehe ég bara á ekki orð, í fyrsta lagi þá ég get ekki ímyndað mér að segja þetta sjálf, nokkurn tíma, enda er þetta svo klént og asnalegt eitthvað. Sömuleiðis þá á ég erfitt með að sjá fyrir mér að vinkonur mínar myndu gera það og ég þekki þær vel. Ég einfaldlega trúi þessu ekki, þú hlýtur nú samt að hafa átt ansi marga bólfélaga fyrst þú hefur lent oft í þessu! Því ég trúi því engan veginn að þú fáir að heyra þetta í hvert einasta skipti, jafnvel annað hvert. En hvað veit ég svosem…