Mér er alveg sama hverjir innflytjendurnir eru, þá meina ég af hvaða þjóðerni. Fólk virðist alltaf einblína mest á fólk frá asíulöndunum þegar talað er um innflytjendamálin hér. Alla vega, mér finnst það ekki nógu gott ef mikið af innflytjendum koma hingað, bara upp á það að glata ekki íslenskri menningu og svolagað. Mér er mjög annt um mitt land og fólk, hef ekkert á móti innflytjendum en það myndi ekki bjaga mig ef það kæmu engir innflytjendur hingað, sem er auðvitað frekar ólíklegt.