Tveggja vikna frí á Alicante, á þriggja stjörnu hóteli, og 100.000kr meira en venjulega til að eyða í mat og annað á tveimur vikum, ég myndi kalla það mjög flott frí. Auðvitað er það bara það sem mér finnst, getur vel verið að það sé ekki nógu gott fyrir þig, þá er ekkert að gera í því. Ég hefði kannski átt að segja “sanna mál okkar”, þar sem ég er bara að reyna að sýna fram á að það er vel hægt að fá flotta tveggja vikna ferð til útlanda fyrir 200.000kr eins og einhver sagði áður, man ekki...