Ég er sjálfur með ágætlega sítt hár, og tel mig “rokkara”. En ég hef samt ekkert á móti hnökkum þannig séð, þeir hnakkar sem ég hef talað við og þekki eru alveg ágætis gaurar. Hins vegar fer í taugarnar á mér hvað allir þessir “smáhnakkar” kaupa sér allir eins föt, til dæmis sé ég oft fimm gaura í hóp, alla í köflóttum Vans skóm, og vá hvað mér finnst það ömurlegt, eyða allir nokkur þúsund krónum í skó, af því að flestir aðrir eiga svona (og að hluta til af því að þeim finnst þeir flottir, kannski).