Já, það er fáránlegt, ég vissi ekki allt um þetta. Auðvitað á 7 ára krakki ekki að vera að passa 4 ára barn, það er rugl. Það hefði kannski ekki breytt neinu hefði bílstjórinn stoppað og sinnt barninu, en sá sem að keyrir á lítinn krakka, og gerir sér grein fyrir því að hann er á lífi en í lífshættu, og keyrir bara í burtu, hann á allt vont skilið. Ég er ekki að segja að þetta atvik hafi endilega verið þannig, en ef það var svona, þá vorkenni ég þessum manni ekki neitt.