Fór með símann minn í viðgerð á mánudaginn af því að skjárinn var alltaf að blikka og slökkva á sér og svo einn daginn virkaði hann ekkert. Nú er spennandi að fá að vita hvaða svar ég fæ. Ég bíst við hinu versta
Þessi bíll lítur út eins og eitthvað freak. Ég hef aldrei skilið þegar menn eru að reyna að gera bílana sína “flottari” með því að troða á þá einhverju rusli. Maður sér einhverja bíla sem líkjast frekar geimskipum en bílum og allt og mörgum finnst þetta svakalega töff. Eins tonna bíll er skyndilega orðinn að 1400 kílóa draslhrúgu. Fokking viðbjóður. Gott dæmi er hvítur Lancer Evo, nýlega hingað kominn. Með þennan spoiler þá lítur þetta skran út eins og innkaupakerra. Af hverju ekki að hafa...
Gaur! Þú ferð ekkert auðveldlega til einhvers skransala og kaupir sömu gerð af Camaro og þennan. Þetta er Yenko Camaro. Að ná sér í bíl eins og þennan er eins og að bíða eftir heilaígræðslu!
Já það get ég. Það er enginn á götunum. Það var einn dökk grænn turbo (200hö) fyrir c.a 1 - 1 1/2 ári síðan. Ég var að fara að kaupa hann og fékk að reynsluaka honum en svo var einhver sjóari sem keypti hann og keyrði á hross og bíllinn varð að flatkökusneið. Einhver 16 ára gutti keypti hann og ætlar/ætlaði að gera hann upp og fara á honum í rallýcross:( Þetta var fallegur bíll. Synd að hann er ónýtur. Það er mynd af honum fyrir og eftir slysið á einhverri af þessum ratemycar.com síðum eða...
Ég byrjaði að æfa hokkí í byrjun árs 1998 þegar skautahöllin var ný byggð. Ég var búinn að ná ágætis tökum á íþróttinni og var alls ekkert verri leikmaður en hinir strákarnir sem höfðu kannski verið að æfa 5 árum lengur en ég. Stuttu eftir að Sergei kom til landsins hætti ég að æfa (og var víst ekki sá eini) Bæði vegna þess að ég var í skóla og af því að maður fékk bara skítkast frá liðsfélögum á æfingu ef maður klúðraði einhverju smávægilegu eins og sendingu. Ég var alveg búinn að fá nóg af...
Það er erfitt að spila agaðan leik þegar mórallinn hjá liðinu er eins og í borgarastyrjöldinni á Líberíu. Það er ekkert til sem heitir liðsheild eða samvinna hjá Birninum. Það eina sem þeir gera er að setja útá liðsfélagana og öskra “Hálfviti”, “Send'ann fáviti” og “Ertu aumingi” Ég er ekki að segja að Björninn sé lélegt lið og þeir eiga mikið af góðum leikmönnum. Á móti kemur hinsvegar að það er bara einfaldlega allt of mikið af fíflum í þessu liði. Þannig er það bara.
Kom einusinni fyrir hjá mér og pabba á Kringlumýrarbrautinni. Vorum á nýjum Dodge Ram og kvikindið fór að þenja sig. Frekar óhugnanlegt að vera á þessum stóra bíl í hvínandi botni. Við stoppuðum og þá hafði einhver gúmmíhosa rifnað og fest í inngjöfinni eða einhver fjandinn. Kallinn reif bara gúmmíið í burtu hélt ferðinni áfram. Þannig var það.
Ég fór þarna fyrr á árinu. Alveg geggjuð ferð. Ég lenti einmitt í svona bið líka hjá Eiffel turninum en við nenntum ekki að bíða eftir lyftu við löbbuðum upp allan turninn. Fór líka í Notre Damme en líka í Sacre Coeur sem mér fannst perónulega miklu fallegri. Verið var að messa yfir Jóhannesi Páli páfa sem var ný dáinn og sú messa var alveg mögnuð. Mér fannst bara eins og guð hafi setið við hliðina á mér!! Hér er mynd af Sacre Coeur— http://www.bigfoto.com/europe/paris/sacre-coeur.jpg
Það verndar þá ekki mikið þegar bíllinn er kannski næstumþví uppá kanti en samt bara afturendinn útá akreinina, nóg til þess að tefja fyrir umferðinni. Þú segir mér ekkert að vera rólegum. Ég æsi mig bara eins mikið og ég tel mig þurfa!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..