Effectarnir sem ég á í augnablikinu eru: P.O.D 2.0 Elctro Harmonix double Muff Dime Cry Baby From Hell(leim nafn? en góður petall) Dunlop Highgain Volume Pedall Spurningar mínar eru hvernig mynduð þið raða þeim upp? Og hvernig eru ykkar uppraðaðir?
nú er ég búinn að reyna að koma mér inní þessa nútíma klassík(veit ekki hvað þetta kallast réttilega. Gæti það verið Minimalismi?) en er bara nógu fróður í þessum málefnum til að uppgötva ný tónskáld. Þeir sem ég hef hlustað á eru Phillip Glass og Arvo Part. Getur einhver bent mér á fleiri og sagt mér hvað þessi stefna heitir réttilega?
Hver er besti kvenkyns hljóðfæraleikari sem þið vitið um? Ég veit til dæmis ekki um neinn yfir meðalgóðann kvenkyns gítarleikara. Af hverju gera stelpunrar ekkert í þessu? Annars ber hæst að nefna bassaleikarann sem spilaði með APC hún er drullugóð. En allavega, Hver er besti kvenkyns hljóðfæraleikari sem þið vitið um?
Þið sem hafið heyrt þetta lag með S.o.a.D finnst ykkur introið ekkert líkt laginu Sá ég spóa? Prófiði allavega að spila frá sekúndu 12' og segið hvað ykkur finnst?
Getur einhver sagt mér hvað San Andreas er? Er það borg, fylki, svæði eða eitthvað annað?(Og ekki segja mér að gúggla það því það kemur bara endalaust um tölvuleikinn fræga)
Ég vil bara nöldra aðeins yfir Felixi Bergssyni í þættinum Popppunkti. Mér finnst þetta alveg frábær hugmynd af þætti og mér finnst mjög gaman að sjá allar þessar hljómsveitir en Felix er bara alls ekki að gera sig í þessu finnst mér. Hann er alltaf með einhverja hræðilega brandara og er alltaf í geðveiku stressi eitthvað. Ég veit vel að hann þarf að halda þessu innann tímamarka en hann er sí rekandi á eftir keppendum og það fer hrikalega í taugarnar á mér. Svo ég spyr, hvað finnst ykkur um kallinn?
Þegar ég er að prufa að taka upp með einhverjum upptökuforritum, bara með einhverjum ömurlegum mic, gerist það að þegar ég er búinn að taka upp eitt track og ættla að taka annað track verður track 2 ekki í takt við hitt. Ég hef prófað þetta í tveimur forritum, Cubase og Kristal. Veit einhver hvað veldur þessu? Vonandi skilur einhver um hvað ég er að tala. Og engin óþroskuð leiðindakomment að vanda
Ég nota Peayvey bandit 112 og þegar ég er að spila eitthvað ofarlega( þ.e.a.s eins og sóló eða einhverja háa tóna) á leadinu heyri ég sama og ekkert hvað ég er að gera. Er ekki hægt að nota equalizer til að hækka signalið á meðan ég er að gera eitthvað þannig? Og svona væl æm att itt, Hvað gerir compressor?
Um daginn settist ég við sjónvarpið og lendi á þessari amerísku dellu Queer eye for the straight guy. Og ég var bara að velta fyrir mér, finnst einhverjum öðrum þetta vera ýktir karakterar? Ekki eru mennirnir svona?
Þannig eru mál með vexti að um daginn hætti ipodið mitt einfaldlega að virka! Þegar ég reyni að gera eitthvað kemur fyrst bara apple merkið og síðan eftir smá stund kemur mynd af möppu með upphrófunarmerki! Það sama gerist þegar ég læt það í hleðslu. Hefur einhver hugmynd um hvað er í gangi? P.S þettta er U2 special editionið
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..