Ég veit að mörgum finnst fréttaskýringaþættir mjög leiðinlegir en þeir eru það alls ekki. Af öllum þessum helstu þáttum, 60 minutes, Dateline og 48 Hours þá er 60 mínútur mikið betri en allir hinir. Uppbyggingin á þáttunum er svona: Fyrst er kynnt þá þrjár fréttir sem verða í þættinum (stundum tvær.) Síðan kynna fréttamennirnir sig, í 60 mínutum eru Ed Bradley, Morley Safer, Mike Wallace, Steve Kroft, Lesley Stahl. Svo er Andy Rooney sem að mínu mati er snillingur sem hefur alltaf örstutta...