Kríur eru fínar. Ástæðan fyrir að þær bögga mann er að þær eru að vernda eggin/ungana sína. Þær eru hræddar við fólkið ;) Ef þær eru að bögga mann, er best að halda á priki yfir hausnum. Þær gogga í hæsta punktinn.
Ég var á selfossi í dag, að vinna á sumarhátíðinni. Það var ógeðsleg rigning. Viðbjóður að standa úti allan daginn að horfa á krakka leika sér með bolta. En hey, græddi slatta pening :D
Þú þarft MJÖG stórt búr, því þeir verða frekar stórir. Þeir þurfa að geta gengið um, svo þarf líka að vera “sundlaug” fyrir þá, þeir vilja nú geta synt eitthvað. Svo þarf pláss til að fljúga, æfa vængina smá ;) Ég býst við að þeir geti lifað á fiski, þú þarft slatta af honum. Þá á ég við slatta. Þetta eru frekustu dýr sem ég veit um.
Skil hvað þú átt við. En besta vinkona mín (þá er ég að tala um ALLRA besta, við vorum alltaf saman og gátum talað um allt) byrjuðum í samböndum á svipuðum tíma. Þannig að við skildum alveg hvora aðra. En ég hef samt misst aðeins samband við aðra vini mína :( Því miður.
Æ vá ég er svo 100% sammála!! Svipað þegar afi minn dó í fyrra… Hann bjó útá landi.. Hitti hann alltof sjaldan. Svo var ég í heimsókn hjá ömmu um síðustu helgi, bjóst við að labba inn og sjá afa þarna í stólnum sínum.. Allaveganna.. góð grein!!!
Mitt ruglaðasta samtal er aðeins of persónulegt til að setja hér, en það inniheldur samkynhneigðar flugur, tvíhöfða verur, eilífðina, þunglyndi, nýrnasýki, dauðvona mann, techno-tónlist og nýrnasýki.
Ég held þú þurfir að vera norskur ríkisborgari. Vinur minn er norskur. Hann var í hernum, og fór meðal annars til Kosovo og barðist þar. Norska varnamálaráðuneytið (eða whatever it was) ákvað að sprengja upp dalinn sem flokkurinn hans var í. Það var náttúrulega fáránleg ákvörðun, það særðust margir norðmenn þar. Herinn er þekktur fyrir lélegt öryggi. Samt sem áður höfum ég og kærastinn minn verið að pæla í að fara þangað seinna. Ég held að það sé ekki erfitt fyrir Íslendinga að verða norskir...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..