Ég er trúlaus, en var mjög trúuð þegar ég var yngri. Það breyttist ekkert varðandi jólin, fyrir utan að ég er ekkert að sækjast eftir að troða styttum af jesúbarninu eða eitthvað þannig útum allt. Ég og kærastinn minn erum trúlaus, en við verðum hjá annað hvort foreldrum mínum eða pabba hans um jólin, og þau eru kristin.