Þráhyggja er að skoða í gegnum yfir 600 myndir á einum degi, bara til þess að vita hvað hún er að gera. Þráhyggja er að finna alltaf fyrir símanum titra í vasanum, þó að hann sé ekki að hringja, og vona, í hvert einasta skipti, að þetta sé hún. Þráhyggja er að skoða Myspace síðuna hennar daglega til þess að athuga hvort að það séu komnar nýjar myndir, eitthvað nýtt úr hennar lífi, svo að þú getir séð hvað hún er að gera, hvernig henni líði. Þetta myndi flokkast undir áráttu. Restin er þráhyggja.