Ég er stressuð því ég er fárveik og á eftir að gera svooo margt! Þarf til dæmis að halda party í kvöld, en á sama tíma þarf ég að fara á markaðinn og kaupa jólagjöf handa vinkonu minni sem kemur annað kvöld og verður með mér 24/7 í tvær vikur, svo ég þarf að kaupa gjöfina áður en hún kemur… Þarf að skrifa svona 15 jólakort í viðbót, finna pósthús, eyða pening sem ég á ekki í andskotans frímerki, ég þarf að taka til og svo um helgina þarf ég að kaupa jólagjafir handa hinum. Og ég er fárveik...