Saklausir orkar að sinna hversdagstörfunum, þetta venjulega fóðra svínunum, þjálfa úlfana, pynta fangaða álfahetju…the ususal. Skyndilega skellur myrkrið á og náttálfar streyma úr öllum áttum, orkarnir búast til varna, en of seint! Þeir eru komnir inn fyrir múra! Trén sem skýla þorpinu svigna til hliðar og inn koma tvær hetjur með sinn herinn hvor! Svört nóttin verður blóðlituð. Orkarnir slá til beggja hliða, en það er eins og álfarnir falli saman við nóttina og það gerir orkunum erfitt...