þú smellir á myndina af Magna(eða þeim sem þú ætlar að kjósa) og þá opnast gluggi. Í þessum glugga eru 8 bókstafir og eða tölustafir í bland, teiknaðir frekar óreglulegir í laginu. Þú endurskrifar þá svo í tóma kassann fyrir neðan og ýtir á enter. Þá fer atkvæðið þitt í gegn, svo lengi sem að þú hafir lesið og skrifað þessa 8 stafi rétt niður. Til þess að kjósa aftur, lokarðu svo glugganum og smellir aftur á myndina. Og þannig geturðu haldið áfram… Góða skemmtun