Það er ekki hægt að segja að ástin eigi að vera svona eða hinsegin því engar tvær manneskjur elska eins. Ástin er eins ólík og ég og þú, og allir hafa rétt til þess að elska á sinn hátt. Mér finnst ekki rétt að gagnrýna og/eða dæma ást annarra og þá allra síst eftir tíma eða öðru því um líku. Ástin er tilfinning, líkt og sársauki eða gleði. Enginn skynjar það líkt og þú. Fólk getur samgleðst þér eða fundið til með þér en það upplifir aldrei það nákvæmlega sama og þú. Fólk upplifir ástina á...