Jamms, mér sýnist þú þurfa alvarlega mikinn innblástur, að minnsta kosti hvað varðar persónusköpun hér. Ég mæli með að þú setjist niður með góða bók/bækur og smellir þér í gegnum þær. Fyrir Wilder fílinginn get ég vart mælt með betri bókum en Wheel of Time, öll serían er góð (það er að segja, það sem komið er af henni). Svo er líka gott að horfa á kvikmyndir stundum, þó það sé ekki nema fyrir sjónörvun. Svo er hugflæði skemmtileg æfing. Sestu niður með blað og blýant og byrjaðu að skrifa það...