Nú ætla ég ekki að dæma presta fyrirfram því að margir þeirra eru mjög góðir menn, en suma á bara ekki að taka alvarlega. Það sem að ég hef fengið á tilfinninfunni með Karl Sigurbjörnsson og Gunnar í krossinum er að að samkynhneigðir hafa framið blóðsynd og það ber ekki að gefa slíkt fólk saman í hjónaband. Samt segir biblían rétt fyrir ofan (Lev 20:10) að annað fólk, t.d. fólk sem að hefur drýgt hór sé með sömu blóðsynd á bakinu. Það er víst ekki guðs vilji að fólk sem að drýgir hór gifti...